Wednesday, September 19, 2012

Antwerpen!

Og svo.. eftir að hafa tekið skutlu frá hótelinu í Amsterdam uppá flugvöll og spjallað við mann frá Simbabve sem bauð mér, eftir 3 mínútna samtal að koma í heimsókn til Afríku (sem ég afþakkaði pent).. tók ég loks lestina og var komin til Antwerpen tveim tímum síðar þar sem Helena og Arndís tóku á móti mér.  Mér var svo hent í taxa og komin heim stuttu síðar þar sem Þorvaldur og Elísabet Ástralía tóku á móti mér.

Sem er þessi litla dama..




Það besta við að vera komin var að geta hent af sér öllum farangrinum og chillað..  
Note to self: Að ferðast með tvö hljóðfæri og risa tösku .. einn..  er ekki sniðugt!

Fyrsta verkefnið mitt er beisiklí að skoða borgina og komast inní lífið hér... og það er ég búin að vera að gera.   Húsið sem við búum í er á frábærum stað á Sint Paulus Plaatz og fyrir utan er torg sem er með allskonar kaffihúsum, börum og veitingahúsum.  Ská á móti þar sem við búum er æðislegt kaffihús/bar sem heitir Homey og þar sit ég núna að sötra kaffi.

Og svo má nú ekki gleyma að segja frá Rauða hverfinu sem er hér bara í næstu götu, sem ég ákvað að hjóla í gegnum í gær af einskærri forvitni og sá þar stelpur uppstilltar í gluggum, margar margar stelpur á nærfötunum, sem annað hvort voru að dilla sér, reykja sígó, reyna að tæla einhvern til sín eða bara hreinlega að sitja þarna og bíða ... og á meðan að ég hjólaði í gegn sá ég að ég var eina stelpan ( sem var ekki á bakvið glugga ) sem var þarna á þessari löngu götu sem aldrei virtist ætla að taka enda. 
En, þá veit ég hvernig þetta hverfi lítur út!  

En nú held ég áfram að skoða mig um... 

Þangað til næst! 

Auf Wiedersehen 

2 comments:

  1. Vei! Gaman að lesa þetta og gott að heyra að þú ert mætt heil á höldnu! Enjoy baby!
    tóta

    ReplyDelete
  2. Hrafndís og KrílríkurSeptember 20, 2012 at 4:24 AM

    Vúhú! Ég get kommentað!
    Ég hugsa að það eitthvað hefðum við rætt þetta ef við hefðum hjólað saman í gegnum þetta sorglega hverfi. Úffff...
    Mikið sem ég öfunda þig elsku elsku Lexa. Við Krílríkur værum sko alveg til í að þvælast þarna með þér.
    Gangi þér svakalega vel og ég við að heilsa Helenu og Þorvaldi.

    ReplyDelete