Jæja.. þá geri ég heiðarlega tilraun til að vera með bloggsíðu!
Ég er komin á þetta aldeilis fína hótel herbergi þar sem ég gisti á eina nótt áður en ég fer til Belgíu.
Herbergið er fínt... lítið.. en það er allt í lagi þar sem að ég er með tvo RISA vaska inná litla baðherberginu mínu.. afhverju þarf tvo?
Allavega ég kom ofboðslega svöng á hótelið til þess að komast að því að það var nýbúið að loka veitingastaðnum á hótelinu og eina sem er í boði sem er nálægt er Macdonalds... sem mér finnst alveg agalega vont, en lét mig hafa það.
Annars er ég sátt með bjórinn sem ég sötra núna!
Þangað til næst..
Bless
vúhú, ég náði fyrst að kommenta á nýja bloggið!
ReplyDeleteVelkominn/Welkom in België Alex/andra
ReplyDelete